Lax með fetaosti

by thelma

Þessi uppskrift er mjög einföld og magnið af því sem þið setjið á fiskinn skiptir í rauninni engu máli, því meira því betra segi ég. En þegar manni langar í lax með einhverju öðru en bara vel kryddaðan þá mæli ég með þessari uppskrift, einstaklega góður, það er allavega ekki leiðinlegt að hafa fisk á mánudegi þegar þessi er borin á borð.

lax með fetaosti

Prenta
fyrir: 4-6 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

2 flök af Laxi 
1 dós af fetaosti
4 tómatar
1/2 rauðlaukur
Safi úr 1/2 sítrónu
fersk basilika
salt

Aðferð

  1. Setjið laxinn í álpappír eða eldfast mót sem má fara á grillið (eða ofninn).
  2. Hellið olíunni af fetaostinum og setjið á fiskinn. Gott er að hafa smá af olíu eftir því það gerir fiskinn svo góðan og djúsí.
  3. Skerið tómatana smátt niður ásamt rauðlauknum. Saxið ferska basiliku smátt niður og setjið yfir fiskinn.
  4. Kreistið síðan safann úr 1/2 sítrónu jafnt yfir eða meira ef þú vilt. Kryddið með smá salti. Grillið yfir meðalháum hita þar til fiskurinn er tilbúinn. Passið ykur þó að grilla hann ekki of mikið því þá verður hann svo þurr. Berið fram með því meðlæti sem ykkur langar til.

    Berið fram með fersku salati og t.d. sætum kartöflum.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað