Eftirréttur með Ísey skyri og kókosbollum

by thelma

Þegar uppskrift inniheldur kókosbollur, hvað þarf meira? Þennan eftirrétt þarf ekki að baka og er mjög fljótgerður, snilld í matarboðið. Ferskur og góður.

Eftirréttur með Ísey skyri og kókosbollum

Prenta
fyrir: 2-3 undirbúningstími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

170 g Ísey skyr með kókos
170 g Ísey skyr með jarðarberjum
8 stk jarðarber, fersk
2 stk kókosbollur
TOPPUR
1⁄4 l rjómi
súkkulaðisíróp
ristaður kókos

Aðferð

  1. Skerið kókosbollurnar í u.þ.b. 4 bita hverja og setjið í botninn á glasi.

  2. Hrærið kókosskyrið og sprautið því í glösin eða setjið ofan í með skeið.

  3. Skerið jarðarberin smátt niður og setjið ofan á.

  4. Hrærið jarðaberjaskyrið og setjið ofan á ásamt kókosbollu.

  5. Þeytið rjóma og sprautið honum ofan á eða setjið á með skeið, skreytið með súkkulaðisírópi og ristuðum kókós. 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað