Grísk jógúrt með hnetusmjöri, berjum og hnetum

by thelma

Þennan rétt má fá sér í morgunmat, sem millimál eða sem eftirrétt. Það er ýmislegt hægt að gera úr grískri jógúrt, t.d. nota sem morgunmat og þá blanda því saman við það sem manni þykir gott, en einnig hentar jógúrtið vel í eftirrétti þar sem það líkist búðingi þegar búið er að blanda það saman við allskonar góðgæti. Ef þið ætlið að nota það sem eftirrétt þá er einstaklega gott að bæta við það dökku súkkulaði, súkkulaðisírópi, karamellu eða öðru sem ykkur langar að hafa með sem gerir réttinn ögn gómsætari sem eftirrétt. Svo er um að gera að prófa sig áfram.

Grísk jógúrt með hnetusmjöri, berjum og hnetum

Prenta
fyrir: 1 undirbúningstími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

100 g Grísk jógúrt frá Gott í matinn
2 msk hnetusmjör, kúfaðar
1 msk döðlusíróp
½ tsk kanill
10 stk vanlhentur
½ bananai
Bláber
Jarðaber

Aðferð

  1. Blandið grískri jógúrt, hnetusmjöri, döðlusírópi og kanil saman í skál og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

  2. Skerið banana í sneiðar, setjið banana í botninn á glasi og setjið helminginn af grísku jógúrtinni ofan á, setjið því næst restina af banananum ásamt grófsöxuðum hnetum.

  3. Setjið restina af jógúrtinni ofan á ásamt jarðaberjum, bláberjum og restinni af hnetunum.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað