Kanilkökur með súkkulaði

by thelma

Þegar þessar fara í ofninn hjá mér eru jólin komin, húsið ilmar af kanil og jólum. Ég þekki engan sem finnst þessar kökur ekki góðar. Þessi uppskrift var í 2. sæti í smákökukeppni Gestgjafans og Kornax

Prenta
fyrir: 40 stk undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

225 g smjör, við stofuhita
200 g dökkur púðursykur
115 g Sykur
2 egg
1 msk. dökkt síróp
1 tsk. vanilludropar
145 g hveiti
1 tsk. matarsódi
4-5 tsk. kanill
¼ tsk. múskat
½ tsk. salt
240 g hafrar
350 g dökkt súkkulaði

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180 gráðu hita og setjið smjörpappír á bökunarplötur.

  2. Hrærið smjör, púðursykur og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.

  3. Bætið eggjum saman við einu í senn og hrærið á milli ásamt vanilludropum og sírópi.

  4. Setjið hveiti, kanil, matarsóda, salt og múskat í skál og blandið saman. Blandið því saman við ásamt höfrum og hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.

  5. Grófsaxið súkkulaði og setjið saman við og blandið því vel saman við deigið.

  6. Myndið jafnstórar kúlur úr deiginu og raðið með jöfnu millibili á bökunarplötuna. Gott er að nota kökuskeið sem flýtir bæði fyrir og gerir allar kökurnar jafnar í stærð.

  7. Bakið í 10- 12 mínútur. Látið kökurnar kólna í rúmlega 10 mínútur áður en þið takið þær af bökunarplötunni. Fyrir ykkur sem viljið meira súkkulaði er hægt að bræða auka súkkulaði og skreyta kökurnar. Geymið í kökuboxi eða öðru lokuðu íláti svo að kökurnar haldist góðar. 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað