skyrkaka með hindberjum og hvítu súkkulaði

by thelma

Þessa kökur er mjög gaman að bera fram þar sem hún er svo falleg fyrir augað og bragðgóð. Gott er að gera ráð fyrir að kæla kökuna yfir nótt.

Prenta
fyrir: 6-8 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 4.0/5
( 2 voted )

Innihald

BOTN
1 pakki kanilkex
120 g smjör
KAKAN
500 g KEA vanilluskyr
1⁄2 l rjómi
3 msk flórsykur
100 g hvítt súkkulaði
6 stk matarlímsblöð
1⁄2 dl mjólk
200 g hindber, frosin eða fersk
TOPPUR
1⁄4 l rjómi
fersk hindber

Aðferð

Botn

Setjið kex í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er fínmalað. Bræðið smjör og blandið saman við og látið matvinnsluvélina vinna.

Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi um 20-22 cm að stærð. Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu niður og upp á hliðar formsins. Geymið botninn í kæli á meðan þið undirbúið rest.

Skyrkaka

  1. Setjið matarlímsblöð í skál með köldu vatni og látið liggja í bleyti í rúmar 5 mínútur.

  2. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða á lágum hita og látið kólna örlítið áður en þið blandið því saman við skyrið.

  3. Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri. Blandið hvíta súkkulaðinu saman við og hrærið vel.

  4. Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni. Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið  er búið að leysast alveg upp. Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel.

  5. Setjið hindberin saman við og hrærið létt. Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst. eða yfir nótt.

  6. Þegar þið takið skyrkökuna úr forminu er gott að nota beittan hníf og skera meðfram köntum formsins áður en þið losið formið utan af. Setjið kökuna á fallegan disk og skreytið.

Toppur

Þeytið rjóma og setjið yfir kökuna ásamt ferskum hindberjum. Hér er notast við sprautustút 1M til að mynda rósir úr rjómanum. Geymið í kæli þar til kakan er borin fram og sigtið þá mögulega smá flórsykur yfir ef þið viljið.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað