Þessi ídýfa toppar allar ídýfur, enda fékk hún nafnið milljón dollara ídýfa. Hún slær alltaf í gegn og það fyrsta sem klárast á veisluborðinu. Ídýfan er fljótgerð og einstaklega góð með snakki eða kexi við hvaða tilefni sem er.
250 g rjómaosturInnihald
1 dós sýrður rjómi 10%
1 pakki Kims dipmix með sýrðum rjóma og púrrulauk
170 g rifinn 4 osta blanda frá Gott í matinn
½ rauðlaukur
6 stk beikonsneiðar
GraslaukurAðferð
Hitið ofninn í 200 gráður, setjið bökunarpappír á bökunarplötu og eldið beikonið þar til það er orðið stökkt. Leyfið beikoninu að kólna.
Setjið rjómaost, sýrðan rjóma og Kims dipmix í matvinnsluvél og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Hér má einnig blanda saman við rauðlauk, beikoni og osti og láta matvinnsluvélina vinna blönduna í mjúka og slétta ídýfu. Fyrir þá sem vilja smá stökk undir tönn er betra að skera rauðlauk og beikon smátt niður og blanda saman við með sleif, ásamt ostinum.
Setjið í skál og skreytið með stökku beikoni, graslauk og osti.
Gott er að bera fram t.d. með salt og pipar snakki eða góðu kexi.