Heit ostaídýfa með kryddostum

by thelma

Æðisleg ídýfa sem best er að njóta á meðan ídýfan er heit með brauði, kexi, selleríi eða því sem hugurinn girnist. Fínt fyrir þá sem fylgja KETO mataræði.

Heit ostaídýfa með kryddostum

Prenta
fyrir: 6-8 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

1 poki rifinn Mozzarellaostur
1 stk Mexíkóostur
1⁄2 Óðals Havarti krydd
200 g rjómaostur
2 msk majónes
1⁄2 laukur
2 stk grænn chilli
kóríander

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180 gráður eða grillið.

  2. Rífið mexíkóost og Óðals Havarti krydd niður í skál og blandið saman við rifinn mozzarella.

  3. Bætið rjómaosti við stofuhita saman við ásamt majónesi, smátt söxuðu chilli og lauk.

  4. Hrærið öllu saman þar til allt hefur blandast vel.

  5. Setjið í eldfast mót og hitið í rúmar 20 mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðnaður.

  6. Ef þið setjið ídýfuna á grillið er gott að hafa vægan hita á grillinu.

  7. Skerið niður ferskan kóríander og stráið yfir ídýfuna.

Notes

Borið fram með kexi, brauði eða því sem ykkur dettur í hug

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað