Tælensk súpa með risarækjum

by thelma

Fljótleg og hrikalega góð súpa sem rífur aðeins í. Því er þó auðvelt að stjórna fyrir þá sem eru ekki mikið fyrir sterkan mat, en þá geti þið helmingað karrýið í uppskriftinni.

Prenta
fyrir: 4-6 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 2 voted )

Innihald

1 dl hrísgrjón soðin í 2 dl vatni
3 msk smjör
400 g risarækjur
3 stk hvítlauksgeirar
1 stk laukur
1 msk rauð paprika
2 cm ferskt engifer
4 tsk rautt karrý paste
1 tsk karrý
3 dl matreiðslurjómi frá Gott í matinn
400 ml kókosmjólk í dós
1 lítri vatn
2 stk grænmetisteningar
4 msk ferskt kóríander
1 límóna, safinn
Salt og pipar

Aðferð

  1.  Byrjið á því að sjóða hrísgrjónin í 2 dl af vatni. Gott er að slökkva undir hrísgrjónunum þegar vatnið er alveg að verða búið og setja lokið á pottinn, þannig klárast þau að eldast í gufunni.

  2. Setjið smjör á pönnu, setjið rækjurnar á pönnuna ásamt salti og pipar og steikið þar til þær eru tilbúnar. Passið ykkur að elda þær ekki of mikið því þá verða þær seigar. Gott er að elda þær í ca 3 mínútur á hvorri hlið. Þegar rækjurnar eru full eldaðar setjið þær í skál og geymið þar til súpan er tilbúin. Þeir sem nota eldaðar rækjur þurfa ekki að steikja þær heldur setja þær beint ofan í súpuna.

  3. Skerið lauk, papriku og hvítlauk niður og steikið á pönnunni. Rífið engifer saman við og hrærið saman.

  4. Bætið rauðu karrý og karrý saman við ásamt kókosmjólk og rjóma.

  5. Blandið vatni saman við ásamt grænmetisteningunum og hrærið þar til súpan fer að sjóða. Gott er að leyfa súpunni að sjóða í rúmar 10 mínútur til að leyfa henni þykkna.

  6. Setjið hrísgrjónin saman við ásamt rækjunum og koriander.

  7. Gott að bera fram með brauði.

Notes

Gott með baquett brauði.


Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað