Thelma Þorbergsdóttir heiti ég og er félagsráðgjafi að mennt, ásamt því að vera PMTO meðferðaraaðili og sjálflærður bakari með meiru. Ég er gift Kristni Jónassyni (Mr. Handsome) og saman eigum við 3 börn.
Þeir sem þekkja mig vita að það að baka og elda er mín eigin hugleiðsla og núvitund. Það er eitthvað við það að vera ein inni í eldhúsi (sem ég fæ þó sjaldnast) og blanda saman hráefnum og úr því kemur eitthvað meistaraverk, eða ekki….þegar uppskriftin heppanst ekki eins og maður sá fyrir sér! Ég elska að baka og elda fyrir fjölskyldu og vini og er þekkt fyrir það að halda stórveislur þegar einhver í fjölskyldunni á afmæli. Matur býr yfir þeim magnaða eiginleika að geta sameinað heilu fjölskyldurnar! Hvað er betra en heit súkkulaðikaka nýkomin úr ofninum og ilmurinn sem angar um húsið allt?
Þegar ég næ ekki að sofna ligg ég oft og hugsa um nýjar og spennandi uppskriftir sem ég væri til í að prófa og þá fer ég á flug og fæ mínar skemmtilegustu hugmyndir. Ég nýt þess einnig að taka myndir af afrakstrinum og er alltaf að læra betur og betur á myndavélina sem skilar sér vonandi til ykkar. Ég tek allar myndirnar á síðunni sjálf nema annað sé tekið fram.
Ég hef verið matarbloggarið síðan árið 2012 þegar ég byrjaði að vinna fyrir www.gottimatinn.is og hef ég unnið fyrir ýmiss fyrirtæki á þeim tíma. Til að mynda sá ég um bæklinga fyrir Nóa Siríus, þar á meðal kökubæklinginn þeirra sem kemur út einu sinni ári. Ég sá um bæklingana árið 2014 og 2015. Þá hef ég einnig unnið fyrir ýmiss tímarit og blöð og haldið bollakökunámskeið.
Ég hef gefið út tvær bækur, Gleðigjafa sem inniheldur frásagnir foreldra sem eiga fötluð börn eða hafa lent í veikindum með börnin sín. Hana gaf ég út ásamt vinkonu minni Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur en henni kynntist ég eftir að ég átti son minn Kristófer Karl sem er með downs heilkenni. Þá gaf ég út mína fyrstu uppskriftabók Freistingar Thelmu sem kom út árið 2013.
Ég er alltaf til í að vinna að fleiri skemmtilegum verkefnum!
Hægt er að hafa samband við mig á netfangi mínu thelma.thorbergs@gmail.com