Krydduð ostamús með rjóma

by thelma
Krydduð ostamús er tilvalin eftirréttur að hausti og í kringum hátíðirnar sem tekur um 15 mínútur að framreiða. Hátíðlegur keimur af ostamúsinni með engifer kökum í botninum og mjúkum rjómanum kitla bragðlaukanna. Þrátt fyrir kryddkeiminn er ostamúsin einstaklega létt og góð.

Krydduð ostamús með rjóma

Prenta
fyrir: 4-6 undirbúningstími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

8 stk engiferkökur
30 g smjör
½ lítri rómi
250 g rjómaostur
70 g sykur
2 msk síróp
1 tsk vanilludrpar
1 tsk kanill
¼ tsk
¼ tsk múskat
¼ tsk engifer
1/8 tsk negull
1/8 tsk kardimommur

Toppur
Rjómi
2 msk flórsykur
Kanilstöng
Rósmarín

Muldar engiferkökur

Aðferð

  1. Myljið kökurnar gróflega, bræðið smjör, blandið því saman við og hrærið öllu saman.
  2. Setjið 2 msk af engiferkökum í botninn á hverju glasi fyrir sig.
  3. Þeytið rjóma þar til hann er orðinn stífur og stendur. Takið helminginn til hliðar til þess að setja á toppinn.
  4. Þeytið rjómaostinn ásamt sírópi, vanilludropum og öllu kryddi. Blandið helmingnum af þeytta rjómanum saman við og hrærið saman með sleif. Setjið blönduna í sprautupoka og sprautið yfir engiferkökurnar.
  5. Blandið flórsykri saman við restina af rjómanum og hrærið varlega saman. Setjið rjómann í sprautupoka og sprautið honum fallega ofan á ostamúsina. Skreytið með kanilstöng, rósmarín og muldum engiferkökum.
  6. Geymið kökurnar í kæli þar til þær eru bornar fram.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað