Hrekkjavöku pizza með pöddum

by thelma

Hrekkjavöku pizza með pöddum

Prenta
fyrir: 4-6 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

       Innihald
380 ml heitt/volgt vatn (40-50 gráður)
1 msk sykur
1 pakki ger (18 g)
1 tsk salt
2 msk ólífuolía
450 g hveiti

Álegg
Pizzasósa
1 poki pizzaostur frá Gott í matinn
 Pepparoni
Græn paprika
Mozzarellakúlur frá Gott í matinn
Svartar ólífur

Aðferð

  1. Hrærið saman vatn, sykur og ger í skál og látið standa í um 10 mínútur eða þar til gerið er farið að freyða.
  2. Setjið ólífu olíu, salt og hveiti saman við, gott er að setja hveitið smátt og smátt saman við og hrærið með hnoðara í nokkrar mínútur eða þar til deigið sleppir skálinni.
  3. Smyrjið skálina með olíu að innan, setjið deigið ofan í og plastfilmu eða rakt viskastykki yfir skálina og látið deigið lyfta sér í klukkustund, best er þó þegar deigið fær nægan tíma til að lyfta sér.
  4. Takið deigið úr skálinni og hnoðið, hérna eru þið að berja deigið niður og ná öllu lofti úr deiginu svo gott er að hnoða ágætlega í stutta stund.
  5. Skiptið deiginu í tvennt, Rúllið deiginu út, gott er að stinga örlítið í það með gaffli áður en þið setjið álegg ofan á botnana.
  6. Setjið pizzasósu á botnana og pizzaost. Setjið pepparoni hér og þar á pizzuna og skerið niður rauða eða græna paprika og myndið fætur á pepparoníið. Setjið smá klípu af mozzarella á pepparoníið, skerið svarta ólífu niður og setjið á ostinn svo það sé eins og auga. Skerið olífurnar niður, myndið pöddur og raðið þeim hér og þar yfir pizzuna. Setjið svo eins mikinn mozzarella og þið viljið og setjið olífur ofan á svo það sé eins og það séu augu á pizzunni
  7. Hitið ofninn í 200 gráður og bakið pizzuna í rúmar 12 mínútur eða þar til osturinn er vel bráðnaður og kantarnir eru orðnir gullbrúnir að lit.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað