Gulrótakaka með kókosrjómaostakremi

by thelma

Mynd eftir Lárus Karl

Gulrótakökur eru alltaf klassískar, góðar og svíkja engan. Þær henta vel við öll tækifæri og auðvelt er að gera þær fallegar og flottar á veisluborðið. Ananasinn gerir kökuna einstaklega mjúka og gefur ákveðið sætt bragð sem hentar vel á móti gulrótunum og kókosrjómaostakreminu.

Gulrótakaka með kókosrjómaostakremi

Prenta
fyrir: 8-10 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

GULRÓTAKAKA
230 g smjör við stofuhita
250 g púðursykur
4 egg
2 tsk vanilludropar
320 g hveiti
1 msk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
2 tsk kanill
1 tsk múskat
130 ml mjólk
500 g gulrætur, rifnar
250 ml ananas, skorinn niður

KÓKOSRJÓMAOSTAKREM
230 g smjör við stofuhita
70 ml sýrður rjómi
500 g rjómaostur við stofuhita
2 tsk vanilludropar
340 g flórsykur
80 g kókos
Ristaðar kókosflögur

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið tvö 24 cm hringlaga bökunarform.

  2. Skerið ananasinn smátt niður, sigtið hann og kreistið sem mestan vökva úr honum.

  3. Rífið gulrætur niður í matvinnsluvél og setjið til hliðar.

  4. Þeytið smjör og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Bætið eggjum og vanilludropum saman við og hrærið.

  5. Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti, kanil og múskati saman í skál og hrærið vel. Bætið hveitiblöndunni jafnt og þétt saman við deigið ásamt mjólkinni, smátt og smátt.

  6. Setjið gulræturnar og ananasinn út í deigið og hrærið varlega saman. Hellið deiginu jafnt í bökunarformin og bakið í miðjum ofninum í 40 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar. Takið kökurnar úr ofninum og kælið alveg. Skerið hvorn botn í tvennt svo úr þeim verði fjórir botnar.

Kókosrjómaostakrem

  1. Hrærið smjör þar til það verður ljóst og létt, bætið sýrða rjómanum út í og hrærið.

  2. Skerið rjómaostinn niður í bita og blandið smávegis saman við í einu. Mikilvægt er að rjómaosturinn sé við stofuhita svo auðvelt sé að blanda honum saman við án þess að þurfa að hræra mikið. 

  3. Bætið flórsykri saman við, smávegis í einu, og hrærið lítillega á milli. Gott er að skafa hliðarnar á skálinni vel inn á milli til að losna við kekki og til að allt blandist vel saman. Bætið vanilludropum og kókos saman við og hrærið lauslega. Ef ykkur finnst kremið of þunnt er hægt að bæta smá flórsykri saman við.

Skiptið kreminu í fjóra hluta og setjið á milli botnanna. Ristið kókosflögur þar til þær hafa náð fallegum gullbrúnum lit og stráið þeim yfir kökuna. Geymið kökuna inni í ísskáp þar til hún er borin fram.

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað