Mjúk og ilmandi pistasíu- og sítrónukaka þar sem djúpt hnetubragð og ferskur sítrónukeimur mætast í fullkomnu jafnvægi. Punkturinn yfir i-ið er silkimjúkt mascarpone rjómaostakremið sem gerir kökuna bæði létta, ferska og einstaklega freistandi. Tilvalin á veisluboðið um páskana eða með sunnudagskaffinu.


Innihald
kaka
170 g hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
100 g pistasíukjarnar ferskir og ósaltaðir eða saltaðir (fer eftir smekk)
Börkur af tveimur sítrónum
120 g smjör við stofuhita
200 sykur
½ tsk sjávarsalt
3 egg
60 g sýrður rjómi
80 ml mjólk
1 tsk vanilludropar
Mascarpone krem
200 g marscarpone rjómaostur frá Gott í matinn
100 g flórsykur
1 msk rjómi
1 msk rifinn börkur af sítrónu
1 msk ferskur sítrónusafi
Hakkaðir pistasíukjarnar ofan á kökuna
Aðferð
1. Setjið smjörpappír í hringlaga eldfast mót ca. 20 cm að stærð og hitið ofninn í 180 gráðu hita með blæstri.
2. Setjið smjör og sykur saman í skál og hrærið þar til blandan er orðin ljós og létt.
3. Bætið einu eggi saman við í einu og hrærið vel á milli. Gott er að skafa hliðarnar á skálinni hér.
4. Hakkið pistasíukjarna í matvinnsluvél þar til þeir eru orðnir fínsaxaðir. Passið þó að hakka þá ekki of lengi svo þeir breytist ekki í pistasíusmjör.
5. Setjið hakkaða pistasíukjarnana í skál ásamt hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og rifnum berki af sótrónu og hrærið vel saman.
6. Blandið þurrefnum saman við ásamt sýrðum rjóma, mjólk og vanilludropum.
7. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og setjið í eldfast mót og bakið í 20 -25 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
8. Á meðan kakan er að bakast undirbúi þið kremið.
9. Takið kökuna út og leyfið henni að kólna við stofuhita áður en þið setjið kremið á svo kremið bráðni ekki.
Krem
1. Setjið öll hráefni sama í skál og hrærið þar til kremið verður slétt og fínt.
2. Smyrjið kreminu vel á kökuna og grófsaxið pistasíukjarna og setjið ofan á kremið.
3. Kakan er best við stofuhita en þarf að geymast í kæli þar til hú er borin fram.
