Toffifee pavlovur með súkkulaði- og kaffirjóma

by thelma

Mér finnst ótrúlega gaman og fallegt að bera fram litlar kökur þar sem hver og einn fær sína eigin köku eins og þessar litlu pavlovur. Það er hægt að nota uppskriftina af pavlovunni eina og sér og nota svo hugmyndarflugið hvað varðar fyllingu. Þessi fylling er þó alveg hrikalega góð, kaffi og súkkulaði klikkar seint. Þessar verða því fallegar á hátíðarborðinu.

Toffifee pavlovur með súkkulaði- og kaffirjóma

Prenta
fyrir: 12 stk undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

PAVLOVUR

4 eggjahvítur

230 g sykur

1 tsk maísenamjöl

1 tsk hvítvínsedik

1 tsk vanilludropar

1 tsk kanill

TOPPUR

1/2 lítri rjómi

2 msk flórsykur

2 msk Cadbury

1 msk kaffiduft (instant)

1 kassi (125 g ) Toffifee

Súkkulaðisíróp

Aðferð

  1. Stillið ofninn á blástur í 120°C og setjið smjörpappír á bökunarplötu.

  2. Hrærið eggjahvítur þar til þær eru orðnar að froðu, bætið þá sykri varlega saman við, smá í einu og hrærið þar til blandan er orðin stíf og stendur.

  3. Bætið maísenamjöli varlega saman við ásamt hvítvínsediki, vanilludropum og kanil og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og blandan er orðin stíf og glansandi.

  4. Setjið marengsinn í sprautupoka og notið t.d. 1M sprautustút til að móta litlar körfur úr marengsnum.

  5. Bakið í eina klukkustund, slökkvið á ofninum og leyfið kökunum að kólna í ofninum.

  6. Þeytið rjóma þar til hann er alveg að verða full þeyttur. Sigtið þá flórsykur og kakó saman við og hrærið saman með sleif. Malið kaffiduft (instant) þannig það verði mjög fíngert og blandið því saman við.

  7. Sprautið rjómablöndunni ofan á hverja köku fyrir sig eða setjið blönduna á með skeið. Setjið heilt Toffifee ofan á hverja köku eða skerið þaðí grófa bita.

  8. 8Skreytið með súkkulaðisírópi og t.d. flórsykri.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað