Afmælisbomba með súkkulaðirjóma

by thelma

Ég er þekkt fyrir að gera mjög stórar kökur fyrir afmæli og önnur tilefni. Flestir byrja á því að veina og segja vá hvað þetta er stór kaka það er varla hægt að skera hana, ég mun aldrei ná að klára þetta. Flestir gúffa þessu þó í sig með bestu list og þeir allra hörðustu fá sér aðra sneið. Það er eitthvað svo fallegt við svona stórar hnallþórur á fallegum kökudiski, þær bera alveg af á veisluborðinu.

Afmælisbomba með súkkulaðirjóma

Prenta
fyrir: 8-10 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

SVAMPBOTN
2 egg
80 g sykur
40 g hveiti
40 g kartöflumjöl
1 tsk lyftiduft
MARENGSBOTN
150 g sykur
3 eggjahvítur
FYLLING
4 kókosbollur
3 msk Nutella
¼ lítri rjómi
250 g jarðaber
8 stk Oreo kexkökur
TOPPUR
½ lítri rjómi
3 msk kakó
Skreytt með Oreo kexi og jarðaberjum

Aðferð

Hitið ofninn í 170 gráðu hita með undir- og yfirhita. Setjið smjörpappír í kringlótt smelluform ca, 22 cm að stærð. Þeytið egg og sykur saman þar til blandan verður ljós g létt. Sigtið kartöflumjöl og hveiti í skál og blandið saman ásamt lyftiduftinu. Blandið hveitiblöndunni saman við eggjablönduna með sleif og hrærið varlega þar til allt hefur blandast vel saman. Bakið í rúmlega 30 mínútur. Kælið botninn alveg áður en þið setjið á hann.

Marengsbotn

Setjið smjörpappír á ofnplötu og setjið til hliðar. Þeytið eggjahvíturnar og blandið sykrinum varlega saman við. Þeytið þar til blandan er orðinn stíf og stendur. Myndið hring sem er jafn stór og formið sem svampbotninn er bakaður í, eða setjið marengsinn í smelluform. Bakið í 50 mín við 150 gráðu heitan ofn, eða þar til marengsinn er alveg þurr viðkomum. Kælið botninn áður en þið setjið kökuna saman.

Fylling

Setjið svampbotninn á kökudisk, hérna geti þið sett Nutella ofan á botninn strax, en hann blotnar ekki eins mikið og ef rjóminn væri settur beint ofan á. Þetta er í rauninni ykkar val hversu blautan svampbotn þið viljið fá. Ég setti Nutella ofan á botninn, raðið kókosbollunum með jöfnu millibili yfir botninn og setti svo rjómann ofan á. Þeytið rjómann, en passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið. Skerið jarðaberin gróflega niður ásamt Oreo kexkökunum og blandið saman við rjómann. Setjið rjómann á kökuna. Setjið marengsbotninn ofan á og þrýstið honum varlega niður

Toppur

Þeytið rjómann en passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið. Blandið kakói saman við og hrærið með sleif þar til allt hefur blandast vel saman. Smyrjið rjómanum yfir alla kökuna. Skreytið með jarðaberjum og Oreo kexkökum Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram. Það er gott að setja á kökuna deginum áður.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað