Kjúklingasalat með beikoni

by thelma

Hrikalega gott og stökkt kjúklingasalat með beikoni. Gott ofan á brauð og kex. 

 

Kjúklingasalat með beikoni
Author: Thelma Þorbergsdóttir
Ingredients
  • 3 kjúklingabringur
  • 2 bréf af beikoni
  • 1 dós sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
  • 5 msk. majones
  • 1-2 msk. sætt dijon sinnep
  • Aromat
  • Graslaukur
Instructions
  1. Grillið kjúklingabringurnar þar til kjúklingurinn er orðinn full eldaður. Skerið þær niður í smáa bita. Einnig er gott að klippa kjúklinginn niður. Setjið smjörpappír á bökunarplötu og raðið beikoninu á plötuna, stillið ofninn á 200°C og eldið þar til beikonið er orðið vel stökkt. Klippið beikonið eða brjótið það niður í smáa bita og blandið saman við kjúklinginn. Blandið saman sýrðum rjóma, majonesi og sinnepi og hrærið vel saman. Ef ykkur finnst salatið þurfa að vera blautara í sér er gott að bæta við majonesi. Kryddið með aromati, gott er að smakka salatið til. Skerið niður graslauk og setjið ofan á salatið. Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað