Grískt pastasalat

by thelma

Einstaklega ferskt og bragðgott pastasalat. Hæt er að bera fram með brauði eða hafa það sem meðlæti. Snilld í afmælin, saumaklubbinn, veisluna eða hvaða samkomu sem er. 

 

 

Grískt pastasalat
Recipe Type: Pasta
Author: Thelma Þorbergsdóttir
Prep time:
Cook time:
Total time:
Grískt pastasalat Þetta salat er einstaklega létt og ferskt með grænmeti og grískri jógúrt. Hægt er að bera það fram eitt og sér, með brauði, eða sem meðlæti með grillmatnum.
Ingredients
  • 250 g Tortellini pasta með osti
  • 250 g pastaskrúfur
  • 1 lítil dós svartar ólífur
  • ½ gúrka
  • 1 box konfekt tómatar
  • ½ rauðlaukur
  • 1 krukka MS fetaostur
  • 1 dós MS grísk jógúrt
  • 40 ml ólífuolía
  • 2 msk. safi úr sítrónu
  • 1-2 msk. ferskt dill
  • 1 hvítlauksgeiri
  • Salt og pipar
Instructions
  1. Sjóðið pastað í tveimur pottum eftir leiðbeiningum á pakkanum. Gott er að bæta smá ólífuolíu og salti saman við vatnið. Þegar pastað er tilbúið, setjið það í skál og látið renna á það kalt vatn þar til pastað hefur náð að kólna alveg. Skerið ólífurnar til helminga ásamt tómötunum. Skerið gúrkuna gróflega niður og blandið öllu saman við pastað. Skerið rauðlaukinn niður og setjið saman við. Hellið olíunni af festaostinum og blandið honum svo saman við. Setjið gríska jógúrt í skál ásamt ólífuolíu, sítrónusafa, hvítlauk og fersku dilli og hrærið vel saman. Blandið því saman við pastað og hrærið saman við þar til allt hefur náð að blandast vel saman. Kryddið með salti og pipar. Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.

 

 

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað