Súkkulaðiostakökubitar með KitKat

by thelma

Súkkulaðiostaköku bitar með KitKat

Prenta
fyrir: 8-10 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

Undirbúningstími 90 mín.

Botn
225 gr. hafrakex
120 gr. sykur
120 gr. smjör

Súkkulaðiostakaka
370 gr. rjómaostur
95 gr. dökkt kakó
90 gr. sykur
2 egg
7 kitkat pakkar

Toppur
300 gr. dökkt súkkulaði
130 gr. smjör

Hvítt súkkulaði
100 gr. hvítt súkkulaði
30 gr. kókosolía eða smjör.

Aðferð

Botn

Setjið hafrakex og sykur í matvinnsluvél þar til kexið er orðið að fínni blöndu. Bræðið smjör og blandið saman við með sleif. Setjið í eldfastmót 20x20 eða meðalstórt form og þrýstið hafrakexblöndunni vel ofan í botninn. Gott að setja smjörpappír í botninn á forminu svo auðvelt sé að ná kökunni upp úr. Bakið í 10 mín. við 180 gráðu hita. Kælið alveg.

Súkkulaðiostakaka

Raðið öllu kitkatinu jafnt og þétt ofan á hafrakexbotninn. Þeytið saman rjómaost, kakó, sykur og egg þar til blandan verður orðin létt í sér og allt hefur blandast vel saman. Setjið rjómaostablönduna yfir kitkatið, það þarf að smyrja blöndunni yfir kitkatið því hún er örlítið þykk. Dreifið varlega úr rjómaostablöndunni með sleif.  Bakið í 35 mín. við 180 gráðu hita. Kælið.

Toppur, súkkulaði

Bræðið súkkulaðið og smjörið yfir vatnsbaði og hellið því yfir kælda ostakökuna. Skreytið með bræddu hvítu súkkulaði.

Toppur, hvítt súkkulaði

Bræðið hvítt súkkulaði og kókosolíu yfir vatnsbaði þar til það hefur náð að bráðna alveg. Skreytið af vild.

Þegar súkkulaðið hefur náð að storkna ofan á kökunni er hún skorin í bita.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað