Stökkar smákökur með saltaðri karamellu og súkkulaði

by thelma

Það er svo þess virði að gera þessar kökur, þær eru algjört sælgæti! Eiginlega betra en sælgæti, því þær eru bæði sælgæti og smákökur í einum bita. Eitt af uppáhalds smákökunum sem við bökum á þessu heimili fyrir jólin.

STÖKKAR SMÁKÖKUR MEÐ SALTAÐRI KARAMELLU OG SÚKKULAÐI

Prenta
fyrir: 16-20 stk undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

140 g hveiti 40 g kakó ¼ tsk sjávarsalt 80 g smjör við stofuhita 70 g sykur 70 g púðursykur 1 egg 1 ½ tsk vanilludropar 2 msk súrmjólk 50 g saltkringur 80 g pekanhentur eggjahvíta Toppur 100 g karamellur t.d. ljósar töggur frá Nóa Siríus 3 msk rjómi sjávarsalt 50 konsum súkkulaði

Aðferð

  1. Hrærið saman smjör, sykur og púðursykur þar til blandan verður ljós og létt. Bætið eggjarauðunni (geymið hvítuna í skál inni í ísskáp), vanilludropum og súrmjólkinni saman við og hrærið.

  2. Setjið hveiti, kakó og salt saman í skál og hrærið. Bætið þurrefnunum saman við blönduna smátt og smátt í einu og hrærið á litlum hraða þar til allt hefur blandast vel saman. Passið ykkur að hræra þó ekki of mikið.

  3. Myndið stóra kúlu úr deiginu og setjið á disk, setjið plastfilmu yfir deigið og kælið í rúmar 30 mínútur.

  4. Hitið ofninn í 180 gráðu hita. Takið eggjahvítuna úr kæli og hrærið léttilega með gafli.

  5. Saxið pekanhnetur og saltkringlur smátt niður og setjið í skál. Búið til kúlur úr deiginu, ca 20 gr. hver. Sejið hverja kúlu ofan í eggjahvítuna og látið leka vel af, rúllið henni svo upp úr pekanhnetublöndunni.

  6. Setjið kökurnar á bökunarplötu með smjörpappír og búið til holu í miðju kökkunar. Bakið í 10 mínútur. Þegar þið takið kökurnar út þarf að þrýsta aftur ofan í miðjuna á kökunni með skeið svo að holan verði enn til staðar fyrir karamelluna.  Látið kökurnar kólna alveg áður en þið setjið karamelluna ofan á.

Toppur

  1. Setjið karamellur og rjóma í skál og bræðið í örbylgjuofninum. Gott er að hita þær í ca. 30 sek. Í einu og hræra svo inn á milli. Þegar karamellurnar hafa bráðnað er gott að hræra vel og setja svo rúmlega eina tsk. af karamellu ofan á hverja köku, eða þar til holan fyllist. Setjið sjávarsalt ofan á karamelluna.

  2. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða inni í örbylgjuofni og sprautið fallega ofan á kökurnar. Látið kökurnar bíða aðeins áður en þið setjið þær í box svo karamellan leki ekki.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað