Oreo Skyrkaka

by thelma


Einstaklega auðveld og góð skyrkaka, ekki láta matarlímið hræða ykkur, það er minnsta mál í heimi um leið og þið hafið gert það einu sinni. Fersk, góð og sæt.

Oreo Skyrkaka

Prenta
fyrir: 8-10 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 4.0/5
( 2 voted )

Innihald

BOTN
24 stk Oreo kexkökur
100 g smjör
SKYRKAKA
500 KEA vanilluskyr
½ lítri rjómi
2 msk flórsykur
6 stk matarlímsblöð
½ dl mjólk
12 stk Oreo kexkökur
TOPPUR
¼ lítri rjómi
4-6 Oreo kex
Súkkulaðisíróp

Aðferð

Botn

  1. Bræðið smjör, setjið í matvinnsluvél ásamt Oreo kexkökum og hakkið þar til kexið er fínmalað.

  2. Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi, ca 22cm að stærð. Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu niður og slétta úr því.

  3. Geymið í kæli á meðan þið undirbúið rest. 

Skyrkaka

  1. Setjið matarlímsblöð í skál með köldu vatni og látið þau liggja í bleyti í rúmar 5 mín.

  2. Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri.

  3. Setjið Oreo kexkökurnar í matvinnsluvél og hakkið þar til þær er orðnar fínmalaðar, blandið þeim saman við skyrblönduna og hrærið.

  4. Kreystið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni. Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið hefur leystst alveg upp. Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel.

  5. Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst. Takið kökuna út úr kælinum, gott er að nota heitann hníf til þess að skera meðfram köntum formsins til þess að losa kökuna. Smellið forminu af og setjið kökuna á disk.

Toppur

  1. Þeytið rjóma þar til hann stendur, sprautið rjómanum fallega á ystu brúnir kökunnar(t.d. með stút nr. 1M) eða setjið hann yfir alla kökuna.

  2. Skerið Oreo Kexkökur gróflega niður og setjið í miðjuna á kökunni ásamt súkkulaðisírópi/sósu.

  3. Skreytið kökuna með Oreo kexkökum að vild. Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram. Auðvelt er að frysta skyrkökur í allt að 3 mánuði.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað