Draugakaka með rjómaostakremi

by thelma

Einstaklega mjúk súkkulaðikaka með silkimjúku rjómaostakremi og hræðilegum draugum! Skemmtilegt að gera með krökkunum þar sem kakan er mjög einföld og þarf alls ekki að vera fullkomin.

Draugakaka með rjómaostakremi

Prenta
fyrir: 8-10 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

Botn 250 ml vatn 130 g smjör 35 g kakó 300 g hveiti 1 tsk matarsódi 440 g sykur 2 stk egg 130 ml súrmjólk 1 tsk vanilludropar Súkkulaðikrem með rjómaosti 100 g smjör við stofuhita 400 g rjómaostur 450 g flórsykur 50 g kakó Smjörkrem Draugar 250 g smjör við stofuhita 500 g flórsykur 4 tsk vanilludropar

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 160 gráðu hita og setjið smjörpappír inn í tvö hringlaga kökuform (20 cm að stærð).

  2. Setjið smjör og vatn í pott og bræðið smjörið yfir lágum hita. Setjið kakóið saman við og hrærið.

  3. Setjið hveiti, matarsóda og sykur í skál og hrærið saman. Blandið súkkulaðiblöndunni saman við og hrærið vel með písk þannig að allt blandist vel saman svo deigið farið ekki í kekki.

  4. Bætið eggjum saman við, einu í senn og hrærið á milli ásamt  súrmjólk og vanilludropum. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

  5. Skiptið deiginu milli tveggja formanna og bakið í rúmar 45 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar. Kælið botnana alveg áður en þið setjið kremið á þá.

 

Rjómaostakrem:

Hrærið smjör og rjómaost saman þar til blandan verður ljós og létt. Gott er að skafa innan úr skálinni og hræra svo betur saman. Sigtið flórsykur og kakó saman í skál og blandið smátt og smátt saman við rjómaostablönduna. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og kremið er slétt og fínt.

Skerið hvorn botn í tvennt með stórum hníf sem sker vel. Setjið botn á kökudisk, setjið krem ofan á, setjið næsta botn ofan á og krem  þar á milli þar til allir botnarnir eru komnir ofan á hvern annan. Setjið krem ofan á toppinn. Gott er að setja kökuna inn í ísskáp í 30 mínútur til þess að leyfa kreminu að þykkna því það rennur aðeins til fyrst.

 

Smjörkrem - draugar:

Hrærið smjör þar til það verður ljóst og létt. Bætið flórsykri saman við smátt og smátt í einu og hrærið vel á milli. Gott er að skafa hliðar skálarinnar vel á milli. Bætið vanilludropum saman við og hrærið. Til þess að fá kremið sem ljósast þarf að hræra vel, rúmar 5-8 mínútur.

Setjið kremið í sprautupoka með stórum hringlaga sprautustút eða klippið endann af pokanum. Sprautið í lita hringi og myndið drauga. Þekja skal toppinn á kökunni með draugum og skreytið að vild. Setjið augu hér og þar á kökuna sem og á draugana. Einnig er hægt að búa til sín eigin augu á kökuna með því að sprauta litlar doppur af smjörkreminu og nota annað kökuskraut sem augasteina eða restina af rjómaostakreminu.

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað