Vanilluskyr í glasi með súkkulaðirjóma

by thelma

Einföld og fljótleg uppskrift af eftirrétti, tilvalinn fyrir páskana.

Vanilluskyr í glasi með súkkulaðirjóma

Prenta
fyrir: 6 undirbúningstími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

½ lítri rjómi

500 g Ísey vanilluskyr

2 msk kakó

½ tsk vanilludropar

Súkkulaði egg, lítil

Ristaður kókos

 

 

Aðferð

Þeytið rjómann þar til hann nánast stendur, passið ykkur að þeyta hann ekki of mikið. Skiptið þeytta rjómanum til helminga. Blandið kakói saman við helminginn af rjómanum, gott er að sigta kakóið saman við og hræra vel saman ásamt vanilludropum.

Setjið súkkulaðirjómann í lítil glös, gott er að nota sprautupoka svo það komi fallega út. Sprautið því næst vanilluskyrinu ofan á súkkulaðirjómann. Því næst setjið þið restina af þeytta rjómanum ofan í hvert glas ásamt grófsöxuðum súkkulaðieggjum, ristuðum kókos og súkkulaðisírópi. Geymist í kæli þar til borið er fram.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað