Einhyrningaafmæli

by thelma

Hildur Emelía varð 7 ára þann 19. júní síðastliðinn. Hún vildi fá einhyrningsköku með gylltu horni og með löng augnhár. Mamman varð að sjálfsögðu við því en gleymdi þó að setja eyru á greyið kökuna en ég kenni brjóstaþoku alfarið um það! Kakan var þó bara fín þótt eyrnalaus væri og Hildur fattaði það nú ekki fyrr en við fórum að skoða myndir seinna um kvöldið.

Eins og alltaf þá prentum við út alls konar skraut í þema afmælisins. Það er ódýr og auðveld leið til að fá allt í stíl við það sem mann langar til að gera. Það er líka algjör gæðastund sem maður nýtur með barninu að klippa og líma þetta allt út og um að gera að leyfa krökkunum að stjórna þessu svolítið.

Ég ætla að deila með ykkur uppskriftinni að kökunni og hvernig við gerðum hana ásamt dýrindis Oreo kleinuhringjum sem slógu heldur betur í gegn. Þeir eru mjög auðveldir að gera en það sem þú þarft að eiga er kleinuhringjaform.

   

 

Diskana, glösin, rörin og servétturnar keyptum við allt í Ikea á frábæru verði. Ikea er alltaf að bæta einhverju við í afmælisdeildina sína sem er algjör snilld. Rörin eru úr harðplasti svo það er hægt að setja þau í uppþvottavélina og nota aftur.

Við prentuðum svo út einhyrningaskraut til þess að skreyta með og er hægt að nálgast það á neðangreindri vefslóð:

Prenta út einhyrningaafmæli

 

 

Ég notaði gömlu góðu uppskriftina að amerísku skúffukökunni hennar mömmu í þessa köku. Það dugir ein uppskrift sem ég skipti niður í 3 hringlaga form um 17 cm að stærð. Hérna er hægt að nálgast uppskriftina: http://freistingarthelmu.blogspot.is/2014/12/i-dag-eg-afmli-eg-kom-vist-ut-me-latum.html

Á milli botnanna vildi Hildur fá Oreo krem

225 g smjör við stofuhita

500 g flórsykur

2-3 tsk. vanilludropar

8-10 Oreo kexkökur

Aðferð

Hrærið smjör þar til það verður ljóst og létt. Bætið flórsykri saman við, litlu í einu og hrærið vel á milli. Blandið vanilludropunum saman við og hrærið. Hakkið Oreo kexkökurnar í matvinnsluvél þar til þær eru orðnar fínmalaðar og blandið þeim saman við kremið. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Ef ykkur finnst kremið vera of þykkt er hægt að bæta við það smá mjólk.

Við skreyttum kökuna svo með vanillusmjörkremi, uppskriftina má finna á vefsíðunni minni: http://freistingarthelmu.blogspot.is/2013/05/vanillu-smjorkrem.html

Ég gerði tvöfalda uppskrift til þess að skreyta kökuna.

 

Ég setti hvítt krem að utan en blandaði svo restinni af kreminu með þessum litum hér og setti alla litina saman í sprautupoka með stút 1M og gerði faxið á hestinn. Við forum svo bara í næstu ísbúð og keyptum brauðform og máluðum með gylltum lit. Við gleymdum eyrunum en við gerðum þau þó úr sykurmassa. Einnig eru augun og augnhárin skorin út úr sykurmassa.

 

 

 

Oreo kleinuhringir með rjómaostakremi

Um 15 stk.

Innihald

200 g hveiti

80 g kakó

120 g púðursykur

1 tsk. matarsódi

1 tsk. lyftiduft

½ tsk. salt

2 egg

150 ml mjólk

120 ml olía (t.d. sólblóma)

2 tsk. vanilludropar

8 Oreo kexkökur

 

Rjómaostakrem

Innihald

60 g rjómaostur

80 ml mjólk

350 g flórsykur

2 tsk. vanilludropar

4-6 Oreo kexkökur

 

Aðferð

Fyrir þessa uppskrift þurfið þið ekki hrærivél!

Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið kleinuhringjaform að innan með smjöri eða matarolíu.

Blandið saman eggjum, mjólk, olíu og vanilludropum og hrærið vel saman. Setjið hveiti, kakó, sykur, matarsóda, lyftiduft og salt saman í skál og hrærið saman. Blandið öllu saman í eina skál og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Grófsaxið Oreo kexkökurnar og hrærið þeim saman við deigið. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið deiginu í kleinuhringjaformið. Passið að fylla formin ekki nema um 2/3 því annars fer deigið upp fyrir brúnina á forminu. Bakið í 10 mínútur eða þar til tannstöngull kemur þurr upp úr kleinuhringjunum. Kælið kleinuhringina alveg áður en þið setjið kremið á.

Krem

Setjið allt hráefnið saman í skál og hrærið þar til kremið verður silkimjúkt. Dýfið kleinuhringjunum ofan í kremið og skreytið með grófsöxuðu Oreo kexi. Best er að borða kleinuhringina strax, ef ekki þá þarf að geyma þá á loftþéttum stað, t.d. í boxi. Ef þið ætlið að bjóða þá fram daginn eftir er gott að baka kleinuhringina daginn áður, geyma þá t.d. inni í ofninum og setja kremið á samdægurs.

 

Njótið

Thelma

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað