S’mores bollakökur

by thelma

Ómótstæðilegar bollakökur sem flest allir borða. Einstaklega gaman að bera fram sem eftirrétt.

S´mores bollakökur

Prenta
fyrir: 14 stk undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

Botn

150 g hafrakex

50 g smjör

3 msk sykur

Súkkulaðibollakökur

120 g hveiti

40 g kakó

½ tsk lyftiduft

½ matarsodi

¼ tsk salt

2 egg

100 g sykur

100 g púðursykur

80 ml olía (t.d sunflower)

2 tsk vanilludropar

1 dl súrmjólk

Krem

4 eggjahvítur

200 g sykur

½ tsk cream of tarter

(vínsteinslyftiduft)

1 ½ tsk vanilludropar

Toppur

50 g súkkulaði, eða önnur súkkulaðisósa

hafrakex

Aðferð

Botn

  1. Hitið ofninn í 180 gráður og raðið bollakökuformum í bökunarform.
  2. Setjið hafrakex, sykur og smjör saman í matvinnsluvél og látið hana vinna þar til kexið er orðið fínmalað og allt hefur blandast vel saman.
  3. Setjið ca. 1 msk af hafrakexi ofan í hvert bollakökuform og þrýstið niður í botninn. Setjið inn í ofn og bakið í 8 mínútur.

Kaka

  1. Setjið hveiti, kakó, lyftiduft, matarsóda og salt saman í skál og blandið saman og setjið til hliðar.
  2. Setjið egg, sykur, púðursykur, olíu, vanilludropa og súrmjólk saman í aðra skál og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  3. Hellið því saman við þurrefnin og hrærið með písk eða sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
  4. Hellið deiginu í formin ofan á hafrakexbotninn þar til formin eru hálf full, passið ykkur að setja ekki of mikið í hvert form svo kakan flæði ekki upp úr við bakstur.
  5. Bakið í 15 mínútur eða þar til tannstöngull kemur næstum þurr upp úr miðju kökunnar. Á meðan þið bakið kökurnar skulu þið undirbúa kremið.

Krem

  1. Setjið eggjahvítur, sykur og cream of tarter saman í skál, best er að nota ál skál eða skál sem þolir hita.
  2. Setjð vatn í pott og sjóðið vatnið. Setjið skálina ofan á pottinn og hrærið stanslaust í eggjahvítublöndunni þar til sykurinn hefur náð að bráðna alveg og blandan orðin ljós og létt. Þetta gæti tekið 6-10 mínútur.
  3. Hellið blöndunni í hrærivél og hrærið þar til blandan er orðin stíf og stendur, blandið þá vanilludropum saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  4. Setjið kremið í sprautupoka, ég notaði hringlaga stóran stút og sprautið kreminu á kökurnar.
  5. Bærðið súkkulaði og setjið ofan á kremið ásamt hökkuðu hafrakexi.

 

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað