Snickers marengskaka

by thelma

Ef þú vilt slá í gegn í Eurovisionpartýinu eða hvaða partýi sem er þá skaltu skella í þessa köku! Ég fór með tvö stk. í vinnuna um daginn og þær voru ekki lengi að klárast. Uppskriftin er einföld og frekar fljótleg. Rjóminn er silkimjúkur með súkkulaðibragði á móti stökkum Snickersbitum, hnetusmjöri og súkkulaðisírópi. Þessi sendir þig alla leið til tunglsins og til baka!!

 

 

Snickers marengskaka
Recipe Type: Marengskaka
Author: Thelma Þorbergsdóttir
Prep time:
Cook time:
Total time:
Serves: 6-8
Ingredients
  • Marengsbotnar
  • 3 eggjahvítur
  • 180 g sykur
  • ½ tsk lyftiduft
  • 70 g Rice Krispies
  • Toppur
  • ½ lítri rjómi
  • 1 ½ msk kakó
  • 2 msk flórsykur
  • 200 g snickers
  • 50 g hnetusmjör (creamy)
  • súkkulaðisíróp
Instructions
  1. Hitið ofninn í 150 gráðu hita (með blæstri) og setjið smjörpappír á bökunarplötu. Þeytið eggjahvítur og sykur saman þar til marengsinn verður stífur og stendur. Setjið lyftiduft saman við og hrærið vel. Blandið Rice Krispies saman við og hrærið léttilega með sleif þar til allt hefur blandast vel saman. Myndið hring á bökunarpappírinn og bakið í miðjum ofni í rúmlega 50-60 mín. eða þar til marengsinn er þurr viðkomu.
  2. Látið marengsinn kólna alveg áður en þið takið hann af bökunarplötunni. Þeytið rjóma þar til hann er stífur og stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið. Sigtið saman við flórsykur og kakó og hrærið vel saman við. Setjið rjóman ofan á botninn og dreifið vel úr honum, sigtið smá kakó yfir rjómann með sigti. Skerið snickersið í grófa bita og setjið ofan á rjómann. Setjið hneturmsjörið í skál og inn í örbylgjuofn í rúmar 10-15 sec. eða þar til það verður mjúkt og auðvelt er að sprauta því úr sprautupoka. Setjið hnetusmjörið í sprautupoka, klippið lítið gat á pokann og sprautið því jafnt yfir kökuna ásamt súkkulaðisírópinu. Fyrir þá sem vilja ekta súkkulaði er hægt að bræða 100 g af dökku súkkulaði og sletta yfir. Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram. Best era ð setja á botninn deginum áður.

 

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað