Bananasplitt bollakökur

by thelma

Þessar kökur er hrikalega góðar!! Snilld sem eftirréttur t.d um helgar eða í afmælið. Kakan sjálf er líka mjög góð ein og sér og hægt er að nota uppskriftina til þess að gera eina köku í hringlaga bökunarformi, gott er þá að setja glassúrið onfa á þá köku og borða með t.d. rjóma.

 

 

Bananasplitt bollakökur
Recipe Type: bollakökur
Author: Thelma Þorbergsdóttir
Prep time:
Cook time:
Total time:
Ingredients
  • Ca 24-30 stk
  • Bollakökur
  • 300 g. hveiti
  • 1 ½ tsk. lyftiduft
  • 230 g. smjör við stofuhita
  • 450 g. sykur
  • 4 egg
  • 2 ½ dl. mjólk
  • 2 meðal stórir þroskaðir bananar (stappaðir)
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 200 g. banana PIPP
  • Vanillukrem
  • 250 g. smjör við stofuhita
  • 500 g. flórsykur
  • 4 tsk. vanilludropar
  • 2-4 msk. mjólk
  • Súkkulaðiglassúr
  • 100 g. flórsykur
  • 2 msk. dökkt kakó
  • 25 g. smjör bráðið
  • 2-4 msk. heitt vatn
Instructions
Bollakökur
  1. Raðið bollakökuformum í mót og hitið ofninn í 180 gráður.
  2. Hrærið smjörið þar til það er orðið mjúkt. Bætið sykrinum saman við og hrærið þar til blandan er orðin ljós og létt.
  3. Bættið eggjum saman við, einu í senn og hrærið vel á milli.
  4. Stappið bananana vel og bættu þeim saman við.
  5. Blandið hveitinu og lyftiduftinu saman í skál og blandið saman við ásamt mjólkinni og vanilludropunum. Passið að hræra ekki of mikið því þá getur kakan orðið seig.
  6. Skerið 200 g. af banana PIPP niður í litla bita og blandið saman við deigið með sleif. Setjið deigið í formin og passið að fylla þau ekki meira en 2/3.
  7. Bakið í ca. 20 mín. eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
  8. Kælið kökurnar vel. Sprautið vanillukreminu ofan á kökurnar, setjið rúmlega 1 msk. af súkkulaðiglassúr á hverja köku og setjið 1 stk. kirsuber ofan á toppinn ásamt marglituðum sprinkles. Geymið inn í ísskáp þar til þær eru bornar fram.
Smjörkrem
  1. Hrærið smjörið þar til það er orðið mjúkt.
  2. Bætið flórsykrinum smátt og smátt saman við og hrærið vel á milli.
  3. Bætið mjólkinni og vanilludropunum saman við.
  4. Ef ykkur finnst kremið of þykkt er hægt að bæta smá mjólk saman við. Hrærið þar til kremið þar til það er orðið mjúkt og hefur náð ljósum lit.
Súkkulaðiglassúr
  1. Blandið kakóinu og flórsykrinum saman og hrærið vel. Bræðið smjörið og blandið því saman við, bætið heitu vatni saman við glassúrið og hrærið vel þar til allt hefur blandast vel saman.

 

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað