ís með creme brulee skyri og karamellu

by thelma

Hrikalega góður heimagerður ís sem auðvelt er að gera. Heimatilbúinn ís geymist vel í nokkrar vikur inni í frysti og því er um að gera að gera jólaísinn í nóvember til að minnka stressið í desember. Kaka sem hentar öllum í fjölskyldunni. Ís sem hentar öllum í fjölskyldunni.

ís með creme brulee skyri og karamellu

Prenta
fyrir: 8-10 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

ÍS
5 stk egg
5 msk sykur
5 dl rjómi
340 g Ísey skyr creme brulee
2 tsk vanilludropar
170 g púðursykur
KARAMELLA
200 g karamellur (ljósar, t.d. töggur eða freyjukaramellur)
1 dl rjómi f
TOPPUR
50 g hakkaðar heslihnetur
100 g dökkt súkkulaði
Karamellusósa

Aðferð

ÍS

  1. Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Blandið púðursykri varlega saman við með sleif.

  2. Þeytið rjóma þar til hann stendur og blandið skyrinu saman við rjómann.

  3. Blandið rjómaskyrblöndunni saman við og hrærið varlega með sleif ásamt vanilludropum.

  4. Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið saman við.

  5. Það er ekki nauðsynlegt að setja eggjahvíturnar saman við ísinn. Það er um að gera að nýta þær í t.d marengstoppa eða annað. Það verður hins vegar meira úr ísnum að blanda þeim saman við.

  6. Setjið ísinn í hringlaga smelluform eða það form sem þið viljið nota.

KARAMELLA

  1. Setjið rjóma og karamellur í pott og bræðið yfir meðalháum hita.

  2. Gott er að hræra vel hérna svo að karamellurnar brenni ekki við.

  3. Hellið karamellunni yfir ísinn og blandið henni saman við með því að snúa hníf í hringi í gegnum ísinn þar til karamellan hefur náð að blandast saman við.

TOPPUR

  1. Saxið súkkulaðið smátt niður og setjið ofan á ísinn ásamt hökkuðum heslihnetum.

  2. Þrýstið þeim varlega niður til að festa þær við ísinn.

  3. Frystið í að lágmarki 5 klukkustundir.

  4. Gott er að bera ísinn fram með karamellusírópi/sósu og rjóma.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað