Marengs ostakökur með saltkaramellu

by thelma

Þessar marengskökur er einstaklega gaman að bera fram. Þær eru öðruvísi og gaman að hver og einn fær sína eigin köku, fyrir utan hvað þær eru hrikalega bragðgóðar. Ostakaka og marengs með karamellu, hver þarf meira?

Marengs ostakökur með saltkaramellu

Prenta
fyrir: 12 stk undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

MARENGS
3 eggjahvítur
180 g sykur
½ tsk vínsteinslyftiduft
½ tsk maísenamjöl
½ tsk salt
OSTAKAKA
Innihald
180 ml rjómi
4 msk flórsykur
170 g rjómaostur
1 msk sýrður rjómi
2 tsk vanilludropar
TOPPUR
Hunangsristaðar hentur.
SÖLTUÐ KARAMELLA
200 g sykur
100 g smjör
120 ml rjómi
1 tsk salt

Aðferð

 Marengs

  1. Best er að byrja á því að búa til karamelluna og láta hana kólna á meðan á bakstrinum stendur.

  2. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og myndið 9 jafn stóra hringi, eða fleiri fer eftir því hversu stórar kökur þú vilt hafa. Stillið ofninn í 120 gráður.

  3. Þeytið eggjahvítur ásamt vínsteinslyftidufti og salti. Blandið saman maísenamjöli og sykri í skál. Blandið sykrinum smátt og smátt saman við eggjahvíturnar og þeytið þar til marengsinn er orðinn stífur og stendur.

  4. Setjið ca. 2 msk af marengs inn í hvern hring sem þú hefur myndað og lagið marengsinn til með skeið.

  5. Setjið ca. 1 tsk af karamellu ofan á hverja marengsköku og hrærið karamellunni saman við með tannstöngli. Gott er að mynda smá holu í miðjunni á kökunni fyrir ostakökuna.

  6. Bakið í 40 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn þurr viðkomu.

Ostakaka

  1. Þeytið rjóma og flórsykur saman þar til rjóminn stendur, passið þó að þeyta hann ekki of mikið. Setjið rjómann í aðra skál.

  2. Þeytið því næst rjómaostinn ásamt sýrða rjómanum og vanilludropum þar til ostablandan er orðið slétt og fín.

  3. Blandið rjómanum saman við ostablönduna með sleif og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

Söltuð karamella

  1. Setjið sykur í pott yfir meðalháan hita og hrærið stanslaust þar til sykurinn hefur bráðnað og er orðinn gullinbrúnn að lit.

  2. Setjið smjör saman við og hrærið vel saman.

  3. Blandið rjómanum varlega saman við og hrærið. Látið karamelluna sjóða í rúmlega mínútu.

  4. Slökkvið undir pottinum og setjið salt saman við og hrærið vel. Kælið karamelluna áður en þið setjið hana yfir kökuna.

Setjið rjómaostablönduna ofan á hverja marengsköku, ca 2 msk. Saxið hneturnar og setjið á hverja köku fyrir sig ásamt karamellu.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað