Kjötsúpa

by thelma

Kjötsúpan í fjölskyldunni minni er að sjálfsögðu sú besta í öllum geiminum! Þessi súpa hefur verið elduð af ömmu  minni og mömmu síðan ég man eftir mér og hefur alltaf verið mitt uppáhald. Þegar Mr. Handsome kom í fjölskyldunni gerði mamma kjötsúpu. Þetta var hálfgert inntökuskilyrði, því ef hann borðaði ekki kjötsúpu held ég að þetta samband hefði bara ekki gengið! án gríns! En sem betur fer fannst honum kjötsúpan svo góð að hann át hana á methraða og mamma sagði við hann að hann borðaði svo hratt að henni væri hálf óglatt! hahahahaha…..þá var hann að stækka svo mikið þessi elska. Þessi súpa er líka uppáhald dóttur minnar og hún biður um kjötsúpu í hvert mál og elskar þetta mjúka kjöt í súpunni. Því miður get ég ekki haft kjötsúpu á hverju kvöldi og á hún erfitt með að skilja það þessi elska.

Í fjölskyldu minni hefur þetta þó alltaf kallast kjöt í karrý, það þýðir að þú færð kjötsúpu, hrísgrjón til hliðar og einstaklega góða karrý sósu allt í sama kvöldmatnum. Ég ætla að deila með ykkur karrýsósunni mjög fljótlega.

Kjötsúpa

Prenta
fyrir: 6-8 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

ca 2 kg af súpukjöti
1 heill laukur
ca. 4 lítrar af vatni, eða þar til vatnið hefur náð aðeins yfir kjötið
10-15 stórar gulrætur
1-2 lúkur af hrísgrjónum (eða eins mikið og þú vilt)
10 kartöflur 
2 rófur
1 hvítkálshaus
1 rauður chilli (má sleppa)
2 stk grænmetiskraftur
2 stk lambakjötkraftur
salt og pipar
Meira vatn ef þörf er á

Aðferð

  1. Setjið kjötið í stórann pott og setjið vatn í pottinn þannig það nái yfir kjötið. Gott er að nota 10 lítra pott svo grænmetið og allt hafi nægilegt pláss ofan í pottinum til að sjóða.
  2. Takið utan af lauknum og setjið  heilan ofan í pottinn ásamt smá salti.
  3. Sjóðið á háum hita þar til suðan er komin upp,  lækkið undir pottinum í meðal háan hita og látið sjóða í a.m.k 2-3 klst. Ef kjötið er ekki frosið eru 2 klst. nægur tími. 
  4. Þegar súpan er búin að sjóða í ca 3 klst. takið þá laukinn upp úr, hann er bara til að gera gott bragð.
  5. Setjið grænmetis- og kjötkraft saman við ásamt kartöflum og hrísgrjónum. Ég sleppi stundum kartöflunum og hef því meira grænmeti, en þið ráðið því. Til að flýta fyrir er einnig gott að taka kjötið upp úr og skera mjög smátt áður en þið setjið grænmtið saman við.
  6. Bætið svo grænmetinu saman við ásamt chilipiparnum, mikilvægt er að skera hann niður mjög smátt og munið svo að þvo ykkur strax um hendurnar!
  7. Látið súpuna sjóða í rúmar 30-40 mínútur til viðbótar. Kryddið með salti og pipar og setjið fleiri grænmetis- eða kjötkraft saman við ef ykkur finnst vanta örlítið meira bragð. Það er mjög mikilvægt að smakka súpuna til og finna hvað manni finnst passlegt. Ef ykkur finnst vanta meira vatn í súpuna þá bæti  þið því bara við.
  8. Súpan er lang best daginn eftir svo vonandi á hún eftir að endast í allavega 2-3 daga! Gott er að frysta kjötsúpuna og geymist hún vel í frysti í allt að 3 mánuði. 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað