Mokkabollakökur með kókoskremi

by thelma

Mynd eftir Lárus Karl

Þessar kökur slá alltaf í gegn í barnaafmælinu hjá fullorðna fólkinu. Þær eru alveg einstaklega góðar með kaffinu. Kakan er mjúk súkkulaðikaka með kaffikeim og sætu kókoskremi ofan á. Ristaði kókosinn gefur kökunni svo fallegt útlit. Einnig er hægt að sleppa kaffinu og bjóða börnunum upp á smakk.

Mokkabollakökur með kókoskremi

Prenta
fyrir: ca 15 stk undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

Kaka
1 egg
170 g sykur
180 ml kókosmjólk (ekki í dós)
115 g bráðið smjör
2 tsk vanilludropar
140 g hveiti
25 g dökkt kakó
3 msk skyndikaffiduft
1 ½ tsk matarsódi
½ tsk salt
2 msk sýrður rjómi
80 g dökkt súkkulaði, grófsaxað

Kókoskrem
225 g smjör við stofuhita
1 msk vanilludropar
460 g flórsykur

2 msk kókosmjólk
40 g kókos
30 g kókos, ristaður

Mokkasúkkulaðiglassúr
80 g flórsykur
1 tsk skyndikaffiduft
2 tsk dökkt kakó
2 tsk kókosmjólk

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C og raðið bollakökuformum í bökunarmót og setjið á bökunarplötu.

  2. Hrærið saman egg og sykur þar til blandan verður ljós og létt. Bætið saman við mjólk, smjöri og vanilludropum og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

  3. Blandið hveiti, kakói, kaffi, matarsóda og salti saman í skál og blandið saman við, bætið svo sýrða rjómanum út í og hrærið lauslega.

  4. Bætið súkkulaðibitum saman við og hrærið með sleif. Sprautið deiginu jafnt í formin og passið að fylla þau ekki meira en 2/3, u.þ.b. 2 msk af deigi í hvert form.

  5. Bakið í 15-18 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar. Kælið kökurnar alveg áður en kremið er sett á þær.

Kókoskrem

  1. Hrærið smjör og vanilludropa vel saman og bætið flórsykri og mjólk smátt og smátt saman við þar til allt hefur blandast vel saman.

  2. Hrærið áfram þar til kremið verður ljóst og létt í sér.

  3. Bætið kókosnum saman við og hrærið lauslega. Sprautið kreminu á kökurnar, setjið eina msk af súkkulaðiglassúr yfir þær og stráið ristuðum kókos yfir hverja köku.

Mokkasúkkulaðiglassúr

Blandið þurrefnum saman í skal og hrærið vel. Bætið kókosmjólkinni saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Ef glassúrinn er of þykkur bætið þá meira af kókosmjólk saman við, aðeins litlu í einu og hrærið vel á milli.

Ristið kókos á pönnu þar til kókosinn hefur fengið fallegan brúnan lit og stráið yfir hverja köku.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað