Kartöflusalat með beikoni og piparosti

by thelma

Kartöflusalat með beikoni og piparosti

Prenta
fyrir: 6 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

1 Kg kartöflur
250 g beikon, eða beikonkurl
3 egg
250 g majones
50 g sýrður rjómi, 10%
2 msk steinselja
2 msk vorlaukur
1 msk Dijon sinnep
1 msk sykur
Safi úr ½ sítrónu
1 ½ tsk salt
1 stk pipar kryddostur

 

Aðferð

  1. Skerið kartöflurnar í sneiðar og setjið í pott með vatni ásamt 1 msk af salti. Sjóðið kartöflurnar í ca 7 til 10 mínútur. Kartöflurnar mega alls ekki sjóða of lengi því þá verða þær að mauk þegar þið blandið þeim saman við salatið.
  2. Á meðan að kartöflurnar sjóða, steikið þið beikonið. Ef þið eruð ekki með beikonkurl þá þarf að skera beikonið smátt niður. Gott er að steikja beikonið þar til það verður örlítið stökkt.
  3. Setjið egg í pott og sjóðið á meðan kartöflurnar eru í suðu.
  4. Blandið majonesi, sýrðum rjóma, Dijon sinnepi, sykri, sítrónusafa og ½ tsk af salti saman í skál og hrærið.
  5. Saxið steinselju og vorlauk smátt niður og blandið saman við.
  6. Skerið pipar kryddostinn smátt niður.
  7. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar er gott að láta kalt vatn renna á þær í örstutta stund. Setjið þær í skál ásamt kryddostinum og beikoninu. Skerið eggin smátt niður og blandið saman við.
  8. Hellið majonesblöndunni saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  9. Setjið saxaðan vorlauk ofan á. Geymið inni í ísskáp þar til salatið er borið fram.
  10. Gott með grilluðu kjöti, kjúkling og fisk.

 

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað