Quesadillas með avókadó ídýfu

by thelma

Quesadillas með avókadó ídýfu

Prenta
fyrir: 4 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

3 kjúklingabringur
4 msk ólífu olía
2-3 tsk chilli
1.5 tsk cumin
Salt og pipar
1 rauð paprika
1 græn paprika
½ rauðlaukur
3 hvítlauksgeirar
Safi úr hálfri límónu
5-6 tortilla kökur meðal stórar
Smjör
1 poki rifinn pizza ostur frá Gott í matinn
1 poki rifinn cheddar ostur frá Gott í matinn
1 poki svartur Doritos
kóríander

Avacado ídýfa

3 avacado, mjúk
1 dós sýrður rjómi 36 % frá Gott í Matinn.
½ límóna
1 bréf af guacamole kryddi
Salt

Aðferð

  1. Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu ásamt 2 msk  af ólífu olíu.

  2. Bætið öllu kryddi saman við og veltið kjúklingnum vel upp úr því. Þegar kjúklingurinn er orðinn eldaður, setjið hann þá í skál og til hliðar.

  3. Skerið paprikurnar í litla bita og steikið á pönnu ásamt 2 msk af ólífu olíu. Skerið rauðlauk gróflega niður og steikið ásamt paprikunum. Því næst er hvítlauknum bætt saman við og steiktur snögglega, passið þó að hann brenni ekki á pönnunni.

  4. Blandið grænmetinu saman við kjúklinginn og kreistið hálfa límónu yfir og hrærið saman.

  5. Setjið smá klípu af smjöri á pönnu og setjið tortillaköku á pönnuna, hitið hana örlítið og snúið henni svo við.

  6. Setjið cheddar og pizza ost yfir alla tortilluna, þegar osturinn er farinn að bráðna aðeins, setjið þá kjúklinga og grænmetisblönduna á helming tortillunar ásamt kóríander og Doritos.

  7. Lokið tortillunni og skerið í 3 bita. Berið fram með salsasósu, avacado ídýfu og meira Doritos.

Avacado ídýfa

Setjið allt hráefni í blandara eða matvinnsluvél og hakkið þar til blandan er orðin mjúk og slétt. Einstaklega góð með Quesada, taco eða tortilla snakki.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað