Brownie með saltaðri karamellu

by thelma

Þessi uppskrift er frekar stór og ekkert mál að helminga, hún hverfur þó fljótt af veisluborðinu og bitarnir geymast mjög vel.

Brownie með saltaðri karamellu

Prenta
fyrir: 30-40 bitar undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

Botn
200 g saltkringlur eða saltstangir
150 g smjör
2 msk dökkur púðursykur

Brownie
320 g smjör
600 g sykur
170 g kakó
½ tsk salt
4 egg
2 tsk vanilludropar
120 g hveiti
1 tsk lyftiduft

Söltuð karamella
400 g sykur
170 g smjör
240 ml rjómi
1 tsk vanilludropar
½-1 tsk salt (sjávarsalt)

Aðferð

Hitið ofninn í 200 gráður og setjið smjörpappír í bökunarform sem er um 20x30 cm að stærð. Mjög mikilvægt er að hafa smjörpappír í botninum og aðeins upp fyrir brúnirnar svo hægt sé að ná kökunni upp úr forminu sem best. Setjið saltkringlurnar í matvinnsluvél og hakkið þar til þær eru orðnar grófhakkaðar. Bræðið smjör og hellið saman við ásamt púðursykrinum og látið matvinnsluvélina vinna vel þar til allt hefur blandast vel saman. Setjið saltkringlublönduna ofan í formið og þrýstið vel niður í botninn. Bakið botninn í 7 mín. takið formið út og kælið á meðan þið undirbúið kökuna.

Brownie

Lækkið hitann á ofninum niður í 180 gráður fyrir kökuna. Setjið smjör í pott og bræðið yfir lágum hita. Þegar helmingurinn af smjörinu er bráðnað, bætið þá kakói, sykri og salti saman við. Hrærið allt vel saman og passið ykkur að láta blönduna alls ekki sjóða. Blandan má einnig ekki vera of heit þegar eggin eru sett saman við. Bætið eggjum saman við, einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið vanilludropa saman við og hrærið. Setjið því næst hveiti saman við og hrærið vel saman þar til blandan verður mjúk og slétt. Hellið blöndunni yfir saltkringlubotninn og bakið í 30 mín. eða þar til að tannstöngull kemur næstum því hreinn upp úr miðju kökunnar. Það er allt í góðu og bara betra ef kakan er aðeins blaut þegar hún er tekinn út úr ofninum. Takið kökuna út og kælið á meðan þið undirbúið karamelluna.

 

Söltuð karamella       

Setjið sykur í pott yfir meðalháum hita og hrærið stanslaust með viðarsleif. Sykurinn fer í harða köggla en það lagast þegar hann hitnar frekar og verður að vökva. Hrærið stanslaust og passið að sykurinn brenni ekk viði. Þegar sykurinn hefur bráðnað alveg og er orðinn gullinbrúnn að lit, bætið þá smjöri saman við og hrærið vel. Blandið því næst rjómanum varlega saman við, smá og smá í einu og hrærið vel. Takið pottinn af hellunni og blandið saman við vanilludropum og salti. Leyfið karamellunni að kólna þar til hún hefur náð stofuhita áður en þið setjið hana yfir kökuna. Hellið karamellunni yfir kökuna, myljið sjávarsalt yfir karamelluna og setjið inn í ísskáp. Kælið kökuna í rúmlega 2 klst. áður en þið berið hana fram. Gott er að nota beittan hníf til þess að skera meðfram köntum formsins svo auðveldara verði að ná henni upp úr forminu, skerið í litla bita

 

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað