Heitt kakó með rjóma

by thelma

Börnin mín vita ekkert betra en heitt kakó og hvað er betra en gott heitt kakó í kuldanum með rjóma og súkkulaði. Þetta kakó gerði ég einnig ótal sinnum í útilegum í sumar og alltaf sló það í gegn. Það skiptir máli að velja gott kakó til að fá þetta ekta súkkulaðibragð sem við erum svo hrifin af.

Heitt kakó með rjóma

Prenta
fyrir: 4-6 undirbúningstími: eldunartími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

40 g dökkt kakó
100 g sykur
1/4 tsk salt
1 dl vatn
8 dl mjólk

TOPPUR
þeyttur rjómi og súkkulaðispænir

Aðferð

  1. Blandið kakói, sykri og salti saman í pott.

  2. Sjóðið vatn og blandið þí saman við kakóblönduna og hrærið vel undir meðalháum hita. Hrærið í rúmar 2 mínútur eða þar til örlítil suðua kemur upp.

  3. Blandið mjólkinni saman við og hrærið vel saman. Hitið  kakóið þar til það er orðið nægilega heitt. 

  4. Berið fram með þeyttum rjóma og súkkulaðispæni.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað