Oreokossar

by thelma
Hrikalega góðir Oreokossar með súkkulaðihjúp og kókos.

Oreokossar

Prenta
fyrir: 16-20 stk undirbúningstími:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

3 eggjahvítur
170 g sykur
½ tsk vanilludropar
16-20 stk Oreo kexkökur
300 g dökkt súkkulaði

Aðferð

  1. Þeytið eggjahvítur og sykur saman þar til blandan verður stíf og stendur.

  2. Setjið vanilludropa saman við og hrærið vel.

  3. Raðið Oreo kexkökum á plötu og sprautið marengsinum á hverja köku fyrir sig, t.d. með sprautustút nr. 1M.

  4. Látið marengsinn standa aðeins þar til hann er orðinn þurr viðkomu.

  5. Bræðið súkkulaði í potti yfir vægum hita og dýfið hverri köku fyrir sig ofaní, gott er að setja kökurnar á ofngrind svo að súkkulaðið geti lekið af kökunum.

  6. Látið súkkulaðið storkna utan á kökunum og borðið. Geymið í kæli.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað