Einstaklega gott salat sem hægt er að bera fram með kjöti, fisk eða kjúklingi. Salatið getur líka verið máltíð eitt og sér. Hægt að bera það fram heitt eða kalt. Fljótlegt og ferskt.

2 meðalstórar sætar kartöflur Salat sósa 1. Hitið ofninn í 180 gráðu hita og setjið bökunarpappír á ofnplötu
Innihald
1 dós af niðursoðnum kjúklingabaunum
2 msk ólífu olía
1 tsk Salt
1 tsk Hvítlaukssalt
1 tsk Chili explosion kryddblanda
1 poki klettasalat
1 askja konfekt tómatar
½ rauðlaukur
1 stk granatepli
150 g ostakubbur frá Gott í matinn
40 ml ólífu olía
Safi úr einni sítrónu
1 hvítlauksgeiri
2 msk hunang
1 tsk saltAðferð
2. Skerið sætu kartöflurnar niður í grófa bita og setjið á ofnplötuna ásamt kjúklingabaunum. Setjið 2 msk af ólífuolíu yfir og kryddið með salti og pipar, hvítlaukssalti og chili explosion kryddi. Ef þið viljið hafa salatið í sterkari kantinum, þá setji þið aðeins meira af chili explosion.
3. Bakið í ca, 40 mínútur eða þar til kjúklingabaunirnar eru orðnar aðeins stökkar en sætu kartöflurnar mjúkar. Gott er að hræra til í kartöflunum eftir ca. 20 mínútur.
4. Setjið klettasalat í skál eða fat. Setjið sætkartöflublönduna ofan á ásamt niðurskornum tómötum, rauðlauk og granatepli. Skerið ostakubbinn smátt niður og dreifið honum vel yfir salatið.
5. Blandið salat sósuna með því að blanda öllu innihaldi saman í skál og hræra vel saman. Hellið yfir salatið.
6. Berið salatið fram strax eða borðið kalt.
