Hver elskar ekki að geta borið fram ljúffenga ostaköku í glasi sem ekki þarf mikla fyrirhöfn. Þessi ostakaka tekur enga stund að útbúa, karamellan en einstaklega góð á móti ostakökunni og stökkum botni með piparkökum og pekanhnetum. Ekkert mál að gera daginn áður.

Botn Ostakaka Toppur 1. Setjið piparkökur eða kanilkex í matvinnsluvél og látið hana vinna þar til kexið er orðið fín malað. Grófsaxið pekanhneturnar og blandið þeim saman við.
Innihald
130 g piparkökur eða kanilkex
100 g pekanhnetur
50 g smjör
400 ml rjómaostur
150 ml rjómi, þeyttur
1 tsk vanilludropar
70 ml karamella/karamellusósa, keypt tilbúin
Karamella
150 ml rjómi
Rest af piparköku og pekanhnetu blöndunniAðferð
2. Bræðið smjör og hrærið vel saman við.
3. Setjið 2 kúfaðar matskeiðar í hvert glas og þjappið vel niður með botni af öðru glasi eða skeið. Setjið í kæli á meðan þið undirbúið ostakökuna. Geymið rest til að setja ofan á í restina.
4. Þeytið 150 ml af rjóma og setjið til hliðar.
5. Setjið rjómaost í hrærivél ásamt sykri, vanilludropum og tilbúinni karamellu og hrærið þar til blandan er orðin mjúk og slétt. Ef karamellan er mjög þykk er gott að setja hana inni í örbylgjuofn 10-15 sekúndur áður en henni er blandað saman við.
6. Blandið rjómanum varlega saman við með sleif og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
7. Best er að setja ostablönduna í sprautupoka og sprauta henni fallega ofan í hvert glas fyrir sig. Setjið ostakökuna inn í ísskáp í 2-4 klst.
8. Áður hún er borin fram setjið 1-2 msk af karamellu yfir ostakökuna, þreytið restina af rjómanum og sprautið honum ofan á og setjið piparköku og pekanhnetublönduna yfir rjómann.
9. Geymist í kæli þar til þið berið ostakökuna fram.
