Þessi grillaða pizza samloka er einstaklega góð og fljótleg, með stökkri skorpu og rucola salati sem steikt er upp úr smjöri, hvað er betra en það? Þetta ættu allir að gera gert!
2 sneiðar af grófu brauði (eða því brauði sem þið kjósið) Setjið pizzasósu á hvora brauðsneið fyrir sig. Setjið ostsneiðar ofaná ásamt pepparoni. Skerið mozzarellakúlurnar niður í sneiðar og raðið ofan á pepparoniið, kryddið með salti og pipar og lokið samlokunni. Hér er auðvitað smekksatriði hvað hver og einn vill hafa mikinn ost, ég segi bara því meira því betra. Setjið smjör á pönnu og hitið yfir meðalháum hita, setjið samlokuna á pönnuna og steikið á hvorri hlið fyrir sig þar til osturinn hefur bráðnað. Gott er að þrýsta örlítið ofan á samlokuna á meðan hún er að eldest. Berið fram með rucola salati.Innihald
2 msk pizzasósa
4 stk pepparoni
2 sneiðar af osti/eða rifinn ostur
2 ltilar kúlur af mozzarellaosti
Salt
pipar
2-3 msk smjör
Rucola salatAðferð