Mynd eftir Lárus Karl
Það er erfitt að lýsa þessari köku. Það er eitthvað í henni sem fær mann til að lygna aftur augunum og detta inn í draumaheim. Þessi kaka er í miklu uppáhaldi hjá mörgum af mínum vinum og fjölskyldumeðlimum, hún slær alltaf í gegn og klárast alltaf. Súkkulaðikakan er einstaklega blaut í sér með miklu súkkulaðibragði. Þetta er hin fullkomna afmæliskaka sem svíkur engan og á þeyttur rjómi mjög vel við.

Innihald
KAKA
60 g dökkt kakó
180 ml heitt vatn
1 dós af sýrðum rjóma
215 g smjör við stofuhita
330 g sykur
3 egg
3 tsk vanilludropar
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
1 pk súkkulaðibúðingur (óblandaður)
KARAMELLUKREM
450 g smjör við stofuhita
340 g flórsykur
2 tsk vanilludropar
¼ tsk sjávarsalt
70 ml karamellusíróp
SÚKKULAÐIGLJÁI
1 dl rjómi
115 g súkkulaði
2 msk hunang
2 msk síróp
1 tsk vanilludropar
Aðferð
-
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið tvö 24 cm hringlaga bökunarform.
-
Blandið kakóinu og heita vatninu saman og hrærið vel, bætið svo sýrða rjómanum saman við og kælið.
-
Hrærið smjör og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Bætið einu eggi í senn út í og hrærið stuttlega á milli. Bætið vanilludropum saman við.
-
Hrærið saman hveiti, lyftidufti, salti og innihaldinu úr súkkulaðibúðingnum. Blandið þurrefnunum saman við deigið ásamt súkkulaðiblöndunni smátt og smátt. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
-
Hellið deiginu jafnt í formin og bakið í miðjum ofni í 20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar. Kakan er örlítið blaut í sér út af súkkulaðibúðingnum. Kælið kökuna alveg.
Karamellukrem
-
Hrærið smjörið þar til það verður ljóst og létt. Blandið flórsykrinum saman við, smávegis í einu og hrærið vel á milli.
-
Blandið vanilludropum, sjávarsalti og karamellusírópi saman við og hrærið í 5 mínútur. Ef ykkur finnst kremið of þykkt er hægt að bæta smá mjólk saman við.
-
Smyrjið kreminu á milli botnanna og yfir alla kökuna. Takið örlítið krem frá til þess að skreyta. Setjið kökuna í kæli á meðan þið gerið súkkulaðigljáann.
-
Súkkulaðigljái
-
Hitið rjómann í litlum potti yfir meðalháum hita þar til hann er orðin mjög heitur, hann á þó ekki að sjóða.
-
Brytjið súkkulaðið niður í litla bita og setjið í skál. Hellið heita rjómanum yfir súkkulaðið og látið standa þar til rjóminn hefur brætt súkkulaðið. Þetta tekur rúmar 5 mínútur.
-
Bætið því næst hunanginu, sírópinu og vanilludropunum saman við og hrærið vel.
-
Kælið súkkulaðigljáann, hann þarf að kólna og þykkna aðeins áður en honum er hellt yfir kökuna svo hann bræði ekki kremið. Best er að hella súkkulaðigljáanum á kalda kökuna, hellið kreminu varlega yfir hana svo kremið leki fallega niður hliðar kökunnar. Setjið kökuna inn í ísskáp og leyfið gljáanum aðeins að storkna. Skreytið svo með restinni af karamellukreminu og setjið Rólóbita ofan á.