Kalt pastasalat með kjúkling

by thelma

Kalt pasta salat með kjúkling, ostakubbi og fersku grænu pestó sem er tilvalið í hádegismat og nesti, sem léttur kvöldmatur eða fyrir saumaklúbbinn. Einfalt og fljótlegt og gott að bera fram með góðu brauði. 

Kalt pastasalat með kjúkling

Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat
Rating: 5.0/5
( 1 voted )

Innihald

500 g pastaskrúfur
Tilbúinn kjúklingur eða 2-3 eldaðar bringur
1 dós konfekt tómatar
½ - 1 pakki ostakubbur frá Gott í matinn
1 haus af ferskri basilíku (í potti)
100 g furuhnetur
80 ml góð ólífu olía
40 rifinn parmesan ostur
2 hvítlauksrif
Rifinn börkur af einni sítrónu
2 msk safi úr sítrónu
Salt og pipar

Aðferð

1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkningu. Eftir að pastað er soðið er gott að láta kalt vatn renna á það svo það kælist.

2. Setjið ferska basilíku, furuhnetur, ólífu olíu, rifinn parmesan ost, hvítlauksrif, börk af sítrónu, sítrónusafa og smá salt og pipar í matvinnsluvél og látið hana vinna þar til allt hefur náð að blandast vel saman og orðið af sósu.

3. Setjið kalt pasta í skál, setjið fersku pestósósuna yfir og blandið vel saman.

4.Skerið ostakubbinn í litla teninga og setjið saman við ásamt niðurskornum tómötum og kjúkling.

5.Saltið og piprið eftir smekk. Gott er að setja auka furuhnetur saman við.

Skildu eftir athugasemnd

Þér gæti einnig líkað