Einstaklega gott kjúklingapasta með krydduðum rjómaostum sem tekur einungis 30 mínútur að elda og bera fram fyrir fjölskylduna er eitthvað sem við öll þurfum. Hægt að skipta kjúklingnum út fyrir t.d. risarækjur og bera fram með brauði.

1 pakki af pasta 500 g Toppur 1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á umbúðum, setjið smá sjávarsalt í vatnið.
Innihald
1 pakka af kjúklingalundum
2 hvítlauksgeirar
1 msk smjör
½ askja af rjómaosti með grillaðri papriku og chili
½ askja af rjómaosti með tómötum og basilíku
10 sólþurrkaðir tómatar
2 dl matreiðslurjómi
salt
fersk basilíka
parmesanosturAðferð
2. Grillið eða steikið kjúklingalundirnar, setjið smá olíu, salt og pipar á kjúklinginn. Eldið kjúklinginn þar til hann er orðinn fulleldaður.
3. Setjið smjör á pönnu, skerið hvítlaukinn smátt niður og steikið í stutta stund.
4. Bætið báðum rjómaostunum saman við, ½ öskju af hvorum ásamt rjóma og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
5. Skerið sólþurrkuðu tómataman smátt niður og blandið saman við rjómaostasósuna.
6. Þegar pastað er full soðið, setjið pastað saman við sósuna og hrærið vel. Setjið örlítið soð af pastanu saman við, eða eins og þið þurfið svo að sósan þeki vel allt pastað. Saltið eftir smekk. Hér má einnig bæta við rjómaostum eftir smekk, þar til sósan verður eins og þú vilt hafa hana.
7. Berið fram með grilluðum eða steiktum kjúklingalundum, ferskri basilíku og parmesanosti. Einnig er gott að bera fram með heitu brauði eða hvítlauksbrauði.
