200 g hveiti Rjómaostakrem Fyrir þessa uppskrift þurfi þið ekki hrærivél! Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið kleinuhringjaform að innan með smjöri eða matarolíu. Blandið saman eggjum, mjólk, olíu og vanilludropum og hrærði vel saman. Setjið hveiti, kakó, sykur, matarsóda, lyftiduft og salt saman í skál og hrærið saman. Blandið öllu saman í eina skál og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Grófsaxið Oreo kexkökurnar og hrærið þeim saman við deigið. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið deiginu í kleinuhringjaformið. Passið að fylla formin ekki nema um 2/3 því annars fer deigið upp fyrir brúnina á forminu. Bakið í 10 mínútur eða þar til tannstöngull kemur þurr upp úr kleinuhringjunum. Kælið kleinuhringina alveg áður en þið setjið kremið á. Krem Setjið allt hráefnið saman í skál og hrærið þar til kremið verður silkimjúkt. Dýfið kleinuhringjunum ofan í kremið og skreytið með grófsöxuðu Oreo kexi. Best er að borða kleinuhringina strax, ef ekki þá þarf að geyma á loftþéttum stað, t.d. í boxi. Ef þið ætlið að bjóða þá fram daginn eftir er gott að baka kleinuhringina daginn áður, geyma þá t.d. inni í ofninum og setja kremið á samdægurs.Innihald
80 g kakó
120 g púðursykur
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
2 egg
150 ml mjólk
120 ml olía (t.d sólblóma)
2 tsk vanilludropar
8 Oreo kexkökur
60 g rjómaostur
80 ml mjólk
350 g flórsykur
2 tsk vanilludropar
4-6 Oreo kexkökurAðferð
Oreo kleinuhringir með rjómaostakremi
Fyrri