Komdu gestunum á óvart með öðruvísi latte, lakkrís latte með rjóma og lakkríssúkkulaði. Einn bolli er á við góða súkkulaðikökusneið svo hægt er að bera þetta fram sem eftirrétt eitt og sér. Skora á ykkur að prófa, sérstaklega ykkur sem elska lakkrís.
3 dl nýmjólk TOPPUR Setjið mjólk og bingókúlur saman í pott og hitið yfir meðalháum hita. Hrærið af og til þar til bingókúlurnar hafa náð að bráðna alveg. Bætið sterku kaffi saman við og hrærið þar til allt hefur blandast saman. Hellið í bolla, setjið þeyttan rjóma ofan á og rífið lakkríssúkkulaði ofan á rjómann.Innihald
150 g bingókúlur
2 dl sterkt kaffi
1/4 lítri rjómi
lakkrís og sjávarsalt súkklulaði frá omnomAðferð