Það er svo þess virði að gera þessar kökur, þær eru algjört sælgæti! Eiginlega betra en sælgæti, því þær eru bæði sælgæti og smákökur í einum bita. Eitt af uppáhalds smákökunum sem við bökum á þessu heimili fyrir jólin.
140 g hveiti 40 g kakó ¼ tsk sjávarsalt 80 g smjör við stofuhita 70 g sykur 70 g púðursykur 1 egg 1 ½ tsk vanilludropar 2 msk súrmjólk 50 g saltkringur 80 g pekanhentur eggjahvíta Toppur 100 g karamellur t.d. ljósar töggur frá Nóa Siríus 3 msk rjómi sjávarsalt 50 konsum súkkulaði Hrærið saman smjör, sykur og púðursykur þar til blandan verður ljós og létt. Bætið eggjarauðunni (geymið hvítuna í skál inni í ísskáp), vanilludropum og súrmjólkinni saman við og hrærið. Setjið hveiti, kakó og salt saman í skál og hrærið. Bætið þurrefnunum saman við blönduna smátt og smátt í einu og hrærið á litlum hraða þar til allt hefur blandast vel saman. Passið ykkur að hræra þó ekki of mikið. Myndið stóra kúlu úr deiginu og setjið á disk, setjið plastfilmu yfir deigið og kælið í rúmar 30 mínútur. Hitið ofninn í 180 gráðu hita. Takið eggjahvítuna úr kæli og hrærið léttilega með gafli. Saxið pekanhnetur og saltkringlur smátt niður og setjið í skál. Búið til kúlur úr deiginu, ca 20 gr. hver. Sejið hverja kúlu ofan í eggjahvítuna og látið leka vel af, rúllið henni svo upp úr pekanhnetublöndunni. Setjið kökurnar á bökunarplötu með smjörpappír og búið til holu í miðju kökkunar. Bakið í 10 mínútur. Þegar þið takið kökurnar út þarf að þrýsta aftur ofan í miðjuna á kökunni með skeið svo að holan verði enn til staðar fyrir karamelluna. Látið kökurnar kólna alveg áður en þið setjið karamelluna ofan á. Toppur Setjið karamellur og rjóma í skál og bræðið í örbylgjuofninum. Gott er að hita þær í ca. 30 sek. Í einu og hræra svo inn á milli. Þegar karamellurnar hafa bráðnað er gott að hræra vel og setja svo rúmlega eina tsk. af karamellu ofan á hverja köku, eða þar til holan fyllist. Setjið sjávarsalt ofan á karamelluna. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða inni í örbylgjuofni og sprautið fallega ofan á kökurnar. Látið kökurnar bíða aðeins áður en þið setjið þær í box svo karamellan leki ekki.Innihald
Aðferð