Hrikalega gott og stökkt kjúklingasalat með beikoni. Gott ofan á brauð og kex.
Kjúklingasalat með beikoni
Author:
Ingredients
- 3 kjúklingabringur
- 2 bréf af beikoni
- 1 dós sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
- 5 msk. majones
- 1-2 msk. sætt dijon sinnep
- Aromat
- Graslaukur
Instructions
- Grillið kjúklingabringurnar þar til kjúklingurinn er orðinn full eldaður. Skerið þær niður í smáa bita. Einnig er gott að klippa kjúklinginn niður. Setjið smjörpappír á bökunarplötu og raðið beikoninu á plötuna, stillið ofninn á 200°C og eldið þar til beikonið er orðið vel stökkt. Klippið beikonið eða brjótið það niður í smáa bita og blandið saman við kjúklinginn. Blandið saman sýrðum rjóma, majonesi og sinnepi og hrærið vel saman. Ef ykkur finnst salatið þurfa að vera blautara í sér er gott að bæta við majonesi. Kryddið með aromati, gott er að smakka salatið til. Skerið niður graslauk og setjið ofan á salatið. Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.